Persónuverndarstefna
Síðast uppfært 21. okt 2026
Smitten ehf. rekur kempa.is og er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem hér er lýst. Við söfnum aðeins því sem þarf til að tengja fólk við kempur, taka við greiðslum og greiða kempum, og við seljum aldrei upplýsingar um neinn.
Hvaða upplýsingum við söfnum
Frá öllum sem skrá sig inn:
- Símanúmer, sem er notað til innskráningar með kóða í SMS.
- Nafn og netfang, svo hægt sé að senda kvittanir og fundarboð.
- Bókanir: hvaða kempu, hvenær, verð, og það sem þú skrifar til kempunnar fyrir fundinn.
- Gjafir: nafn viðtakanda og kveðjan sem þú lætur fylgja.
- Greiðsluupplýsingar frá Rapyd, svo sem tilvísun og stöðu greiðslu. Kortanúmer fara beint til Rapyd og við sjáum þau aldrei.
Frá kempum að auki
- Mynd, fyrirsögn, lýsing, sérsvið, verð og lausir tímar, sem birtast á prófílnum.
- Fullt nafn samkvæmt Þjóðskrá og kennitala, sem eru eingöngu notuð á reikninga og við útborgun og birtast hvergi á vefnum.
- Bankareikningur og eigandi hans, og hvort viðkomandi sé á virðisaukaskattsskrá.
Til hvers við notum þær
- Að skrá þig inn, bóka fundi, senda fundarboð og kvittanir (efndir samnings).
- Að gefa út reikninga og greiða kempum, og að varðveita bókhaldsgögn eins og lög um bókhald nr. 145/1994 krefjast (lagaskylda).
- Að verja þjónustuna gegn svikum og misnotkun, til dæmis með því að senda SMS aðeins í íslensk farsímanúmer (lögmætir hagsmunir).
Hverjir vinna með okkur
Við notum eftirfarandi vinnsluaðila. Hver þeirra fær aðeins það sem þarf til síns verks:
- Supabase: gagnagrunnur og innskráning, hýst í Frankfurt.
- Vercel: hýsing vefsins.
- Rapyd: kortagreiðslur og endurgreiðslur.
- Prelude: sending innskráningarkóða í SMS.
- Google Workspace: fundarboð og Google Meet fyrir myndbandsfundi, og tölvupóstur.
Hvað kempan sér
Þegar þú bókar fund sér kempan nafn þitt, netfang, tímann og það sem þú skrifaðir fyrir fundinn. Kaupandi sér aldrei kennitölu eða bankaupplýsingar kempunnar.
Hve lengi við geymum þær
Reikningar og bókhaldsgögn eru geymd í sjö ár frá lokum reikningsárs, eins og lög gera ráð fyrir. Annað geymum við á meðan aðgangurinn er virkur. Ef þú eyðir aðganginum eyðum við öllu sem ekki þarf að varðveita samkvæmt lögum.
Vafrakökur
Við notum aðeins tvær vafrakökur: aðra sem heldur þér innskráðum, og hina sem man hvort þú valdir ljóst eða dökkt útlit. Engar auglýsinga- eða greiningarkökur.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka eða andmæla vinnslu, og fá þær afhentar á tölvutæku formi. Skrifaðu okkur á fundur@kempa.is. Þú getur líka kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).