kempa

Skilmálar

Síðast uppfært 21. okt 2026

Þessir skilmálar gilda um notkun kempa.is, sem Smitten ehf. rekur. Með því að skrá þig inn samþykkir þú þá.

Hvað kempa er

kempa tengir fólk við íslenskar kempur sem selja tíma sinn, á myndbandsfundi eða í persónu. kempa selur fundinn og innheimtir greiðsluna; kempan veitir ráðgjöfina sjálf og ber ábyrgð á henni.

Aðgangur

Þú skráir þig inn með íslensku farsímanúmeri og kóða sem við sendum í SMS. Gættu þess að aðrir komist ekki í símann þinn eða aðganginn, og gefðu upp rétt nafn og netfang.

Bókanir og greiðsla

  • Verð eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti.
  • Greitt er með korti þegar bókað er, í gegnum Rapyd. Tíminn er þinn þegar greiðslan hefur gengið í gegn.
  • Fyrir myndbandsfundi sendum við fundarboð með Google Meet hlekk á bæði þig og kempuna.

Afbókanir og endurgreiðslur

  • Þú afbókar 24 klukkustundum eða meira fyrir fundinn: full endurgreiðsla.
  • Þú afbókar með styttri fyrirvara: 50% endurgreiðsla, því kempan hefur þegar haldið tímanum fyrir þig.
  • Þú mætir ekki: engin endurgreiðsla.
  • Kempan afbókar eða mætir ekki: full endurgreiðsla.
  • Endurgreiðsla fer á sama kort og greitt var með.

Gjafir

  • Gjafabréf gildir í 12 mánuði frá kaupum og er innleyst með kóðanum á því.
  • Kóðinn veitir aðgang að fundinum, svo farðu með hann eins og reiðufé.
  • Ef fundur sem greiddur var með gjöf er afbókaður með minnst 24 klukkustunda fyrirvara fær viðtakandinn gjöfina aftur og velur nýjan tíma.

Fyrir kempur

  • Við förum yfir hverja umsókn áður en prófíll birtist, og getum hafnað umsókn eða tekið prófíl úr birtingu.
  • kempa heldur eftir þóknun af verði hvers fundar án virðisaukaskatts: 20% þegar kaupandinn finnur þig á kempa, og 10% þegar hann kemur í gegnum þinn eigin hlekk (kempa.is/b/…) og bókar innan 30 daga, nema um annað sé samið.
  • Við gefum út reikning fyrir þína hönd (sjálfsreikningagerð) og greiðum mánaðarlega inn á bankareikninginn sem þú skráir.
  • Tekjur af fundi verða lausar 3 dögum eftir hann. Upphæðir undir 5.000 kr. færast yfir á næsta mánuð.
  • Þú berð ábyrgð á eigin sköttum og á að vera á virðisaukaskattsskrá þegar velta krefst þess.
  • Þú staðfestir að upplýsingarnar á prófílnum séu réttar.

Framkoma

Notaðu kempa ekki til að áreita fólk, fara fram hjá greiðslum, selja það sem óheimilt er að selja eða villa á þér heimildir. Við getum lokað aðgangi sem brýtur gegn þessu.

Ábyrgð

Kempur veita ráðgjöf á eigin ábyrgð og kempa ber ekki ábyrgð á efni hennar eða afleiðingum þess að fylgja henni. Ábyrgð kempa vegna fundar takmarkast við það sem greitt var fyrir hann.

Breytingar og lög

Við getum breytt þessum skilmálum og látum vita af stærri breytingum. Um skilmálana gilda íslensk lög og ágreining má bera undir Héraðsdóm Reykjavíkur. Spurningar sendast á fundur@kempa.is.