Davíð Örn Símonarson
Frumkvöðull sem hefur lokið 10 fjármögnunarlotum
fjármögnun · sprotafyrirtæki · vöruþróun · samskipti · hugbúnaður · samningar
Ég er meðstofnandi og framkvæmdastjóri Smitten og hef verið í startup bransanum í tæp 15 ár. Ég hef farið margoft frá fyrstu hugmynd og vöruþróun yfir í að byggja upp teymi, sækja fjármagn og stækka fyrirtæki á erlenda markaði. Ég hef tekið þátt í og leitt um 10 fjármögnunarlotur, unnið með íslenskum og erlendum fjárfestum og safnað samtals yfir 2 milljörðum króna fyrir Smitten. Ég hef líka mikla reynslu af stefnumótun, vöruþróun, growth, rekstri og þeim fjölmörgu vandamálum sem fylgja því að byggja fyrirtæki frá grunni. Ég get helst hjálpað frumkvöðlum sem eru að vinna að neytendavörum, hugbúnaði eða öppum, hvort sem það snýr að fjármögnun, pitchi, product-market fit, growth, stefnu eða einfaldlega að ræða næstu stóru ákvörðun. Ég er sérstaklega hrifinn af því að fara beint í kjarnann, skoða vandamálið með gagnrýnum augum og finna hvað skiptir mestu máli að gera næst.